Þá legg ég í hann!!!

Þá er ferðalagið hafið sem stendur yfir í 12 vikur. Það gæti hljómað stuttur tími en þegar lagt er af stað í svona ferð er það nú meira en að segja það.

Þetta byrjaði allt á því að ég sá auglýsinguna á Smartland Mörtu Maríu og rak augun í þetta HOLLYWOOD form..... hver væri ekki til í það J Ég hugsaði mig samt um í nokkra daga og ákvað svo að slá til og sækja um, hefði svo sem engu að tapa ég kæmist þá í mesta lagi ekki inn.

En svo varð úr að ég komst inn og var boðuð í viðtal ásamt 15 verðugum konum. Sem endaði með að úr varð þessi Fabulous 5 hópur kvenna.

Margir hafa svo sem spurt mig af hverju ÉG sé að sækja um að komast í svona átak? Ástæðan er einföld..... ég er leið á því að vera föst í sömu hjólförunum. Þetta er gríðalegt tækifæri sem maður fær til að koma sér út fyrir þægindar rammann og gera eitthvað allt annað.  Ég er týpan sem hef verið að æfa 5-6 sinnum í viku, ríf mig upp á morgnana klukkan 5:30..... ó, já hjá mörgum er nótt þá. Dríf mig í ræktina og hristi af mér slenið. En út úr því hef ég ekki fengið það sem ég hef vonast eftir.

 Í rauninni hef ég aldrei þurft að spá í hvað ég sé að borða ekki fyrr en árið 2005 þegar ég skipti um vinnu og fór að vinna í kyrrstöðuvinnu. Þá komu kílóin mjög fljótt, sama hvað ég hreyfði mig jafnvel þótt  ég hefði ekki breytt neinu í mataræðinu. Við það hef ég verið að glíma undanfarin ár og þarf að hafa mig alla við að bæta ekki aukakílóum á mig.

Nú er ég með allt til alls næstu 12 vikurnar, leiðsögnina,  aðhaldið og staðfestuna til að koma mér í Hollywood form. Eitthvað sem ég hef þráð í langan tíma.

Nú þegar er ég búin að mæta í 3 tíma í Hreyfingu með Önnu Eiríks. Enginn tími er eins og eru þeir hver öðrum skemmtilegri. Það er eins og maður sé á 4 námseiðum í einu því að tímarnir eru svo fjölbreyttir. En fjórða æfingin er á morgun en þá verðum við í Hot tíma sem vinnur með djúpvöðvana.

Við höfum að sjálfsögðu fengið leiðbeiningar með mataræðið. Það getur nú verið erfitt að gera matseðil sem á að henta öllum. Þetta er mjög létt og gott fæði sem ég borða. Mikið af fiski, kjúkling, salat og síðan ýmsir grænir og vænir drykkir sem eru mjög góðir.

Ég vona að ég geti verið innblástur til þeirra sem hafa vantað þetta litla X-tra uppá til að ná sínum markmiðum.... það er hægt 150% ég ætla að sanna það J

Þar til næst

Júlía Rós


Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vúhú :) Þú veitir mér innblátur besta mín.. hlakka til að sjá flottan árangur :D:D

Sigríður Arna Júlíusdóttir (IP-tala skráð) 17.9.2011 kl. 19:05

2 identicon

Gangi þér vel Júlía mín veit þú tekur þetta með trompi.

Olla (IP-tala skráð) 17.9.2011 kl. 19:06

3 identicon

Já þú ert minn innblástur þar sem ég er líka að koma mér í x-tra gott form , þú átt eftir að standa þig vel enginn vafi á því  , gangi þér vel

Stefanía Dögg Hauksdóttir (IP-tala skráð) 21.9.2011 kl. 13:15

4 identicon

Mikið ertu dugleg! hlakka til að fylgjast með þér...ætli við verðum ekki allar fabjúlos í næsta saumo með grænmeti og vatn :)

Go go go !! 

Erna Þráinsdóttir (IP-tala skráð) 23.9.2011 kl. 00:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Júlía Rós Júlíusdóttir

Höfundur

Júlía Rós Júlíusdóttir
Júlía Rós Júlíusdóttir

30 ára, tveggja barna móðir sem bý í Mosfellsbæ en er fædd og uppalin á Sauðárkróki. Er því Króksari í húð og hár. Ætla mér á næstu 12 vikum að ná mínu allra besta formi og breyta mínum lífstíl til framtíðar!!!

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband