19.10.2011 | 21:17
Líkaminn blómstrar og sálin líka
Sjötta vikan genginn í garð og verðum við návæmlega hálfnaðar á laugardaginn.... kannski skrýtið að vera alltaf að telja vikur því að þetta er svo sem eitthvað sem ég ætla mér að gera í framtíðinni en ekki bara í 12 vikur og svo bara pakka saman og detta í gamla farið aftur. Kemur ekki til mála!!! Það sem er líka svo gaman þegar þetta er komið svona vel á veg að þá eru matarvenjurnar orðnar svo eðlilegar hjá mér, veit svo vel hvað ég á að sleppa og veit hversu mikið ég á að fá mér. En svo koma alltaf upp slíkar stundir að ég er lengur á leiðinni heim úr vinnu en ég ætlaði mér eða eitthvað annað þá finnst mér rosa gott að vera alltaf með próteinstykki í töskunni eða möndlur til að grípa í. Í staðinn fyrir að stoppa í næstu sjoppu og kaupa súkkulaði eða einhverja óhollustu.
Tók hlaup í gær 7 km og bætti tímann minn frá því fyrir viku síðan um mínútu, rosa ánægð með það bæta tímann í hverri viku.
Það var svo tími hjá Önnu Eiríks í kvöld og var stöðvaþjálfun og var maður alveg búin á því eftir tímann. Vígði einmitt flottu fötin sem við fengum frá Reebook easytonek línuna við fabulous 5 ;) Vá ég fann sko fyrir því hvað það var miklu erfiðara að gera æfinarnar buxurnar eru með svo mikla mótstöðu að það er eins og maður sé með auka lóð á lærunum.... sem ætti að skila sér í betra formi. Síðan er svolítið skrýtið að vera í skónum því að þeir eru með loftbúðum á öðrum stað en á venjulegum skóm, þarf því meira að einbeita sér að halda jafnvægi á þeim.
Þá er best að hvíla líkamann fyrir brjálaðann hjólatíma með henni Vöku á morgun ;) það skemmtilega við fimmtudaga er að eftir brjálaðann hjólatíma förum við 5 fræknu á Krúsku sem er á Suðurlandsbraut og fáum okkur alltaf eitthvað brjálaðislega gott að borða.... og ekki skemmir fyrir að þetta er allt súper holt og jú gott ;) !!!
Þar til næst
Júlía Rós
Um bloggið
Júlía Rós Júlíusdóttir
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Elsku Júlía... dugnaður og jákvæðni.. staðfesta og þvílíka hugrekkið sem þú hefur það er æðislegt að fylgjast með þér. Hahahahah ég er í pínu hláturskasti yfir þessu með buxurnar er þetta virkilegt... :) varðandi uppskeruna og þá er ég sammála S.. að maður uppsker en alltaf aðeins meira en það sem maður leggur inn :) þú ert náttlega gordjöss elsku besta Júlían mín :) knúsjú og hlakka til að sjá loka myndir versus fyrstu... kv og kærleikur HK
Hanna Kristín Didriksen (IP-tala skráð) 28.10.2011 kl. 06:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.